27.04.2010
Um helgina fór fram Kjarnafæðismótið í körfubolta sem haldið er fyrir krakka 12 ára og yngri. Mótið var haldið í íþróttahúsinu við Síðuskóla. Auk heimamanna í Þór voru skráð til leiks lið frá Tindastól, Dalvík, Smáranum og Reykdælum.
Lesa meira
26.04.2010
Ein vinsælasta grilltegundin frá Kjarnafæði er BBQ grísakótelettur. BBQ grísakóteletturnar komu fyrst á markað fyrir tveimur árum og hittu beint í mark, slógu í gegn svo um munaði. Vinsældirnar hafa svo bara vaxið enda um alveg frábæra vöru að ræða.
Lesa meira
19.04.2010
Kjarnafæði hefur hafið sölu á nýrri áleggstegund, Ítalskt salami. Ítalskt salami er sérlega bragðgott álegg, tilvalið á smurt brauð, í samlokur, pastarétti, eggjakökur o.fl.
Ítalskt salami inniheldur sólþurrkaða tómata og er bragðbætt með hvítlauk og grófmuldum svörtum pipar.
Lesa meira
16.04.2010
Grillkjötið er farið að streyma í verslanir enda margir búnir að draga fram grillið fyrir sumarið. Allir þekkja hið frábæra grillkjöt og grillpylsur frá Kjarnafæði og svo eru grillsósurnar rómaðar. Að vanda býður Kjarnafæði upp á mikið úrval af grillvörum. Allar vinsælustu tegundirnar verða í boði áfram og svo munu bætast við skemmtilegar nýjungar þegar líður fram á grillsumarið.
Lesa meira
25.03.2010
Nú fagnar Kjarnafæði 25 ára afmæli sínu. Bræðurnir Eiður og Hreinn Gunnlaugssynir stofnuðu Kjarnafæði 19. mars 1985. Kjarnafæði er fjölskyldufyrirtæki eins og þau gerast hvað best þar sem eigendur og fjölskyldur þeirra leggja hjarta sitt og sál í fyrirtækið.
Lesa meira
17.02.2010
Fleiri hundruð krakka heimsóttu starfsstöðvar Kjarnafæðis á Akureyri og Svalbarðseyri í dag og hafa líklega aldrei verið fleiri. Öskudagsbúningarnir voru alveg frábærir í ár og ekki voru söngvarnir síður skemmtilegir. Við þökkum öllum sem lögðu leið sína til okkar.
Sjá myndir, smelltu hér.
Lesa meira
11.02.2010
Á Menntadegi iðnaðarins sem haldið var á Grand Hóteli Reykjavík 10. feb. var fjallað um menntun og vöxt. Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir ávarpaði þingið og afhenti fimm fyrirtækjum styrki SI til kennslu á vinnstað. Fyrirtækin sem hlutu styrk að þessu sinni eru Kjarnafæði, Gullkistan, Sveinbjörn Sigurðsson, Vélaverkstæði Hjalta og Vélsmiðja Hornafjarðar.
Lesa meira
08.02.2010
Saltkjötsframleiðsla Kjarnafæðis er á fullu þessa dagana enda dagarnir fyrir sprengidaginn langstærsti sölutími ársins á saltkjöti. Á sprengidaginn taka Íslendingar hefðirnar alvarlega og borða hefðbundna baunasúpu með saltkjöti. Þessi þjóðlegi og dásamlega góði réttur á rætur sínar að rekja til þess tíma þegar almenningur tók föstuna alvarlega og sniðgekk kjöt á föstunni. Fastan er 40 dagar, hefst á öskudag og stendur yfir til páska. Því nýttu menn sér tækifærið síðasta dag fyrir föstu og belgdu sig út af matarmiklu kjöti. Þessi siður hefur síðan verið fastur liður á sprengidag þótt æ færri fasti í kjölfarið.
Lesa meira
23.12.2009
Frábær og einfaldur ís sem smellpassar á veisluborð um jólin og páskana, ja bara hvaða tækifæri sem er. Í upprunalegu uppskrifinni er notað Toblerone súkkulaði en auðvitað má skipta því út fyrir hvaða gott súkkulaði sem er og um að gera að nota íslenskt.
Lesa meira
16.12.2009
Kjarnafæði og Norðanfiskur eru aðilar að nýjum rammasamningi Ríkiskaupa um kaup á ferskum og frosnum matvælum. Um er að ræða viðamikinn samning sem tekur til allra innkaupa á fersku og frosnu kjöti og fisk, sem og unnum kjöt- og fiskvörum. Samningurinn tók gildi 30.11.2009.
Lesa meira