Nýsköpun á aðventunni - Matvælafyrirtæki kynna íslenskt góðgæti um helgina

Íslenskir matvælaframleiðendur taka höndum saman í tilefni af Ári nýsköpunar og kynna fyrir landsmönnum íslenska matvælaframleiðslu helgina 4.-5. desember. Kynning verður á jólamat og drykk í Vetrargarðinum Smáralind þar sem kjötiðnaðarmeistarar úrbeina hangikjöt sem verður gefið mæðrastyrks­nefnd til úthlutunar fyrir jólin. Kjarnafæði verður að sjálfsögðu á staðnum og gefur gestum og gangandi hangikjötssmakk.
Lesa meira

Jólaleikur Kjarnafæðis

Margrét Blöndal og Felix Bergsson vakna með hlustendum Rásar 2 á laugardagsmorgnum í þættinum Bergsson og Blöndal. Nú taka þau höndum saman með Kjarnafæði og leita að hinum eina sanna kjarna jólanna. Þú getur tekið þátt með því að senda hugleiðingu eða góða sögu um kjarna jólanna á bergsonogblöndal@ruv.is og átt möguleika á að vinna glæsilega matarkörfu frá Kjarnafæði. Fylgist með Bergson og Blöndal alla laugardaga fram að jólum og takið þátt í þessum skemmtilega jólaleik.
Lesa meira

Glæsilegur árangur Íslenska Kokkalandsliðsins

Íslenska kokkalandsliðið náði gulli í keppnisliðnum heitum mat á HM í matreiðslu og varð fjórða efsta þjóðin í þeim lið. Frábær árangur og eftir því tekið að litla Ísland hafi burði til að standa í stóru þjóðunum í keppni sem þessari. Meðal hráefnis sem notað var í heita matnum var lambahryggvöðvi (file) frá Kjarnafæði. 
Lesa meira

Jólapakkar fyrir starfsmenn

Nú dregur að jólum og við hjá Kjarnafæði viljum minna á okkar frábæru jólapakka fyrir starfsmenn. Við bjóðum upp á fjölbreyttar matarkörfur með áherslu á íslenska framleiðslu.  Hafið samband við sölumenn okkar (460-7400) og þeir taka vel á móti ykkur. Við erum mjög sveigjanleg ef þið viljið einhverjar séróskir um innihald.
Lesa meira

Áleggið klætt í gull

Í tilefni 25 ára afmælis Kjarnafæði hafa áleggsbréfin frá Kjarnafæði fengið nýtt útlit. Allir þekkja gæðaáleggið frá Kjarnafæði og viðskiptavinir geta verið alveg rólegir, áleggið sjálft breytist ekkert þó að umbúðirnar fái upplyftingu.
Lesa meira

Lifrarpylsan frá Kjarnafæði, gamaldags og góð

Lifrarpylsan frá Kjarnafæði er gerð með gamla laginu. Uppskriftin kemur frá Rannveigu Eiðdóttur, móður þeirra Kjarnafæðisbræðra, uppskrift sem hún lærði af móður sinni upp úr aldamótum. Uppskrift hennar er notuð alveg óbreytt við framleiðsluna hjá Kjarnafæði enda ber bragðið og áferðin merki þess að þarna er ekta slátur á ferð, gamaldags og gott. 
Lesa meira

Gústav A. Gunnlaugsson er Matreiðslumaður ársins

Á Matardögum 2010 í Vetrargarðinum í Smáralind um sl. helgi fór fram val á Matreiðslumanni ársins 2010.  Það var Gústav Axel Gunnlaugsson frá Fiskfélaginu sem hlaut nafnbótina að þessu sinni en opin forkeppni var haldin fimmtudaginn 23. september í Smáralind. Fimm matreiðslumeistarar komust síðan áfram og kepptu til úrslita í gær.  Í öðru sæti varð Ólafur Ágústsson frá VOX og í því þriðja Sigurður Kristinn Haraldsson einnig frá VOX. Í aðalréttinn var m.a. notuð grísasíða frá Kjarnafæði.
Lesa meira

Velheppnuð matarsýning

Fjölmargir lögðu leið sína á gómsætu matarhátíðina í Vetrargarðinum í Smáralindinni um helgina en það er Klúbbur Matreiðslumeistara sem átti veg og vanda af skipulagningu Matardaga 2010. Keppniseldhúsin voru full af lífi alla helgina og gátu gestir Smáralindar fylgst með því sem þar fór fram; allt frá Matreiðslumanni ársins yfir í ýmsar keppnir með léttara ívafi.
Lesa meira

Hrísgrjónagrautur

Hjá mörgum er það hefð að fá sér hrísgrjónagraut með slátri á laugardögum. En hvort sem menn halda sig við laugardaga eða aðra daga, þá er hrísgrjónagrautur ódýr, einfaldur og góður matur. Mikilvægt er að nota svokölluð grautargrjón (stutt, hringlaga og sterkjurík), annars er hætta á að grauturinn verði þunnur og laus í sér. Fyrir 4
Lesa meira

Ein stærsta matarhátíð landsins á næsta leiti

Fyrsta árlega matarhátíð Klúbbs Matreiðslumeistara, Matardagar 2010, verður haldin í Smáralindinni dagana 23. – 26. september í Vetrargarðinum. Á Matardögum verður að finna fjöldann allann af matartengdum viðburðum og skemmtiatriðum auk fjölmargar fagkeppnir, t.a.m. Matreiðslumaður ársins, Framreiðslumaður ársins, nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu, Súpukeppni, Klakaskurður, Eftirréttur ársins svo eitthvað sé nefnt. Kjarnafæði verður með sýningarbás á hátíðinni.
Lesa meira