Á Matardögum 2010 í Vetrargarðinum í Smáralind um sl. helgi fór fram val á Matreiðslumanni ársins 2010. Það var Gústav Axel Gunnlaugsson frá Fiskfélaginu sem hlaut nafnbótina að þessu sinni en opin forkeppni var haldin fimmtudaginn 23. september í Smáralind. Fimm matreiðslumeistarar komust síðan áfram og kepptu til úrslita í gær. Í öðru sæti varð Ólafur Ágústsson frá VOX og í því þriðja Sigurður Kristinn Haraldsson einnig frá VOX. Í aðalréttinn var m.a. notuð grísasíða frá Kjarnafæði.
Forkeppni fyrir keppnina um Matreiðslumann ársins 2010 var haldin fimmtudaginn 23. september í Vetrargarðinum í Smáralind. Þar komust 5 keppendur áfram í sjálfa úrslitakeppnina sem var haldin sunnudaginn 26. september í Vetrargarðinum Smáralind.
Hinir keppendurnir sem komust áfram eru Þórður Matthías Þórðarson frá 1919 og Vigdís Ylfa Hreinsdóttir frá Fiskfélaginu.
Myndir og fleira frá keppninni.