Fréttir

Nýr upplýsingavefur um kjöt

Nýr upplýsingavefur um kjöt hefur verið opnaður á slóðinni http://www.kjotbokin.is/.  Vefritið kemur í stað Íslensku kjötbókarinnar sem kom út á prenti árið 1994 en hefur verið ófáanleg um nokkurn tíma.
Lesa meira

Allt á fullu í grillmatnum

Sumarblíðan leikur nú við landsmenn og salan á grillkjöti er eftir því. Þótt landsmenn hafi ekki látið miður gott veður fyrri hluta sumars stöðva sig í því að grilla, þá hefur blíðan undanfarna daga gert Íslendinga grillóða. Grillkjöt og pylsur mokast út sem aldrei fyrr og svo virðist sem landsmenn hafi hreinlega lagt aðrar eldunaraðferðir á hilluna í bili.
Lesa meira

Ný skýrsla um skólamáltíðir

Út er komin skýrsla um skólamáltíðir á Norðurlöndum á vegum Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar, NICe. Skýrslan er afrakstur verkefnis sem unnið var í samstarfi allra Norðurlandanna og var stýrt af Samtökum iðnaðarins.
Lesa meira

Fóður eða fæða?

MATVÍS stendur fyrir opnu málþingi fagmanna og framleiðanda um þá gagnrýni sem hefur komið fram á mat í mötuneytum skólanna 6. apríl kl. 15:00 að Stórhöfða 31.  Þar eru ásakanir um að fóður sé borið á borð en ekki fæða.
Lesa meira

Öskudagurinn 2011

Fleiri hundruð krakka heimsóttu starfsstöðvar Kjarnafæðis á Akureyri og Svalbarðseyri í dag og hafa líklega aldrei verið fleiri. Öskudagsbúningarnir voru alveg frábærir í ár og ekki voru söngvarnir síður skemmtilegir. Við þökkum öllum sem lögðu leið sína til okkar. Sjá myndir, smelltu hér.
Lesa meira

Saltkjöt fyrir sprengidaginn

Sprengidagurinn er á næsta leiti og þá er tími fyrir saltkjöt og baunir. Tíminn í kringum sprengidaginn er einn sá annasamasti hjá starfsmönnum Kjarnafæðis á árinu enda fáir Íslendingar sem láta þennan þjóðlega og skemmtilega sið framhjá sér fara. Uppskrift af saltkjöti og baunum má finna hér.
Lesa meira

Heimilisbúðingur – ódýr máltíð fyrir alla fjölskylduna

Heimilisbúðingurinn frá Kjarnafæði hefur notið mikilla vinsælda alveg frá því að hann kom á markað 2006. Ástæðan er einföld: Heimilisbúðingurinn er góður en jafnframt ódýr matur.
Lesa meira

Þorramaturinn kominn á fullt

Það er alltaf nóg um að vera hjá Kjarnafæði, um leið og einni törn er lokið tekur önnur við. Nú er jólavertíðin rétt af staðin og þá tekur Þorrinn bara við. Það er farið að styttast í Bóndadaginn og þá hefst þorramánuðurinn. En auðvitað vilja margir taka forskot á sæluna og gæða sér á hinu einstaka góðgæti sem þorramaturinn er, áður en vertíðin hefst formlega. Starfsmenn Kjarnafæðis hafa því síðustu daga verið á fullu við að skera og pakka þorramatnum.
Lesa meira

Jólauppskriftir á kjarnafaedi.is

Á uppskriftavef Kjarnafæðis má finna margar uppskriftir af jólamatnum, bæði sígildum uppskriftum og líka öðrum sem eflaust munu festa sig í sessi á jólaborðum landsmanna. Skoðaðu td. Hangikjöt með uppstúf Sinneps- og kornflöguhjúpaður hamborgarhryggur Hunangsgljáður hamborgarhryggur Einiberjakryddað lambalæri Sykurbrúnaðar kartöflur Ris à l'amande Jólagrautur að hætti mömmu Lúsíubrauð Jólakringla Skyrkaka meistarans Hátíðarís
Lesa meira

Kjarni jólanna

Margrét Blöndal og Felix Bergsson í þættinum Bergsson og Blöndal á Rás 2 hafa í desember leitað að hinum eina sanna kjarna jólanna. Hlustendur gátu sent inn hugleiðingar eða góðar sögur um kjarna jólanna. Margar frábærar sögur komu en Margrét og Felix völu úr ólíkar sögur sem lýstu á skemmtilegan og hugljúfan hátt góðum íslenskum jólum. Vinningshafarnir hlutu síðan glæsilega matarkörfu frá Kjarnafæði að launum.
Lesa meira