Almennt
11.05.2009
Í dag voru tilkynnt úrslit í keppninni Matreiðslumaður ársins 2009 sem haldin var í um helgina á Sýningunni Ferðalög og frístundir, sem nú stendur í Laugardalshöll. Það var Jóhannes Steinn Jóhannesson hjá veitingastaðnum VOX sem hreppti fyrsta sætið, annað árið í röð. Í öðru sæti var Þórarinn Eggertsson hjá Orange og í þriðja sæti var Rúnar Þór Larsen hjá veitingastaðnum Bryggargatan í Svíþjóð.
Lesa meira
Almennt
07.05.2009
Það er sannkölluð sælkerahelgi 8. - 10. maí næstkomandi helgi, þar sem fjölmargar keppnir verða í boði, t.a.m Vínþjónn Ársins 2009, Matreiðslumaður ársins 2009, Matreiðslumaður Norðurlanda 2009 og Íslenskt eldhús 2009. Keppnin Matreiðslumaður ársins fer fram föstudaginn 8. maí í Íþrótta- og sýningarhöll í Laugardal. Sú keppni hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1994.
Þar hafa fjölmargir færir matreiðslumenn komið fram á sjónarsviðið og síðan gert garðinn frægan í öðrum keppnum. Sigur í keppninni Matreiðslumaður ársins veitir keppnisrétt í keppnunum Matreiðslumeistari Norðurlanda, Global Chef Challenge, One World competition o.fl. Oft hafa keppendur þurft að kafa djúpt í reynslubankann, þar sem skylduhráefni hefur verið t.d. nýru, lifur, ferskir hrútspungar, kúfskel, hörpuskel og lambaframpartur, svo nokkur dæmi séu nefnd.
Lesa meira
Almennt
17.03.2009
Kjarnafæði hefur sett á markað frábæra nýjung, Krakkabúðing. Krakkabúðingurinn er úrvals kjötbúðingur sem er ekki einungis sérlega bragðgóður, heldur er hann á margan hátt byltingarkenndur og hentar vel fyrir þá sem hugsa um heilsuna.
Lesa meira
Almennt
10.03.2009
Klúbbur matreiðslumeistara stendur fyrir þremur matreiðslukeppnum á þremur dögum á sýningunni Ferðalög og frístundir sem haldin verður í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal 8.-10. maí nk. Sú fyrsta, sem fram fer föstudaginn 8. maí, ber yfirskriftina Matreiðslumaður ársins, önnur keppnin, Matreiðslumeistari Norðurlanda, fer fram laugardaginn 9. maí og landshlutakeppnin Íslenskt eldhús 2009 verður haldin sunnudaginn 10. maí.
Lesa meira
Almennt
25.02.2009
Fleiri hundruð krakka heimsóttu starfsstöðvar Kjarnafæðis á Akureyri og Svalbarðseyri í dag. Öskudagsbúningarnir voru alveg frábærir í ár og einnig voru söngvarnir skemmtilegir. Við þökkum öllum sem lögðu leið sína til okkar.
Sjá myndir, smelltu hér. (fleiri á leiðinni)
Lesa meira
Almennt
23.02.2009
Landsmenn hafa verið duglegir við þorramatinn síðustu vikur en nú er þorranum að ljúka og handan við hornið er sprengidagur. Það er því nóg að gera í saltkjötsframleiðslu hjá fyrirtæki eins og Kjarnafæði þessa dagana. Auðjón markaðsstjóri Kjarnafæðis segir í viðtali við Vikudag að sala á saltkjöti byrji mjög vel og hann er bjartsýnn á að salan verði ekki minni en á undanförnum árum. "Fólk vill frekar íslenskt og sækir í heimilismat. Saltkjötið er heppilegt í kreppunni, ódýr en góður matur, auk þess sem fólk er að borða með kjötinu, baunir, grænmeti og fleira. Bolludagurinn er einnig framundan og þá er einnig mikil sala í kjötfarsi og steiktum kjötbollum."
Lesa meira
Almennt
23.01.2009
Nýr sölumaður, Ólafur Már Þórisson, hefur tekið til starfa á Akureyri. Óli mun sinna öllum verslunum á Akureyri. Síminn hjá Óla er 460-7424/840-7427 og netfangið er olafurm@kjarnafaedi.is.
Lesa meira
Almennt
05.01.2009
Íslendingar
átu íslenskt um hátíðarnar samkvæmt upplýsingum frá Félagi afurðastöðva
en þar eru menn afar sáttir við kjötsöluna fyrir hátíðarnar. Nokkur
aukning virðist vera í kjötsölu á milli ára. Sölutölur fyrir síðasta ár
liggja ekki fyrir en að sögn Sigurðar Jóhannessonar, framkvæmdastjóra
SAH afurða á Blönduósi og formanns Félags afurðastöðva, virðist vera
nokkur aukning í kjötsölu á milli ára.
Lesa meira
Almennt
17.12.2008
Það er hefð fyrir því
að íslendingar geri vel við sig í mat og drykk um jól og áramót. Mikið
er keypt inn af girnilegum matvælum sem tilreidd eru í eldhúsum
heimilanna fyrir jól og yfir hátíðar. Mikilvægt er að huga vel að
réttri meðferð matvæla, svo komast megi hjá því að sjúkdómsvaldandi
örverur spilli jólagleðinni. Inn á heimasíðu Matvælastofnunar má finna góð ráð til að tryggja örugg matvæli um jólin.
Sjá ráðin, smellið hér.
Lesa meira
Almennt
31.10.2008
Haustslátrun 2008
á dilkum er nú lokið, bæði á Blönduósi og Vopnafirði. Slátrun gekk mjög vel,
aukning varð á báðum stöðum og meðalfallþungi er umtalsvert meiri í ár en í
fyrra, eða ríflega 16 kg.
Lesa meira