Meget godt... med pepperoni!

Nú er farin af stað auglýsingaherferð fyrir Kjarnafæði pepperoni. Nú er farin af stað auglýsingaherferð fyrir Kjarnafæði pepperoni. Það var hönnunarhúsið Geimstofan sem hafði veg og vanda að gerð auglýsinganna. Danmörk þótti eiga vel við hugmyndir og útlit auglýsingarinnar. Því var áveðið að halda af stað til Kaupmannahafnar og taka upp auglýsingarnar þar.

Leikstjóri auglýsingarinnar var Baldvin Z, leysti hann verkið vel af hendi og þótti útkoman mjög góð í alla staði. Tónlistin var samin í Svíþjóð af Írisi Viktoríu, tölvuvinnslan og grafík var svo unnin hér heima á Íslandi.

Í auglýsingunum er fylgst með ævintýrum ungs Íslendings, Pétri Arnóri Indriðasyni, sem er nýfarinn í nám í Danmörku. Hann er mikill aðdáandi Kjarnafæði Pepperoni og á í mestum erfiðleikum með að skilja vanþekkingu Dana á Kjarnafæði pepperoni.