Lambakæfan slær í gegn

Íslenska lambakæfan frá Kjarnafæði hefur svo sannarlega slegið í gegn. Þessi sígilda vara fékk netta andlitslyftingu í formi nýrra umbúða og hefur sú breyting mælst sérlega vel fyrir.

Íslenska lambakæfan frá Kjarnafæði hefur svo sannarlega slegið í gegn. Þessi sígilda vara fékk netta andlitslyftingu í formi nýrra umbúða og hefur sú breyting mælst sérlega vel fyrir.

Innihaldið er hins vegar hið sama enda óþarfi að hræra í þeirri frábæru uppskrift. Kæfan bragðast eins og góð heimatilbúin kæfa og ekki að furða þar sem uppskriftin er næstum 100 ára og engu verið breytt. Íslenska lambakæfan frá Kjarnafæði er því laus við öll rotvarnarefni, þrávarnarefni og önnur aukaefni, s.s. MSG (þriðja kryddið). Hún hentar sérlega vel á rúgbrauð, flatbrauð og er alveg tilvalin í skólanestið.