Tómat salat með íslenskri hráskinku
Tómaturinn er skorin í netta bita, radísurnar í sneiðar og hráskinkan rifin niður. Þetta allt sett ofan á salatbeð.
Innihald:
- Einhvers konar salat eða salatblanda
- 2 radísur
- 1 tómatur
- 3 sneiðar hráskinka
- 30g parmesanostur
- 1/2 skarlottólaukur
- 2 msk hunang
- 2 msk ólífuolía
- 2 msk lime safi
- salt og pipar
Aðferð:
Tómaturinn er skorin í netta bita, radísurnar í sneiðar og hráskinkan rifin niður.
Þetta allt sett ofan á salatbeð. Hunangi, ólífuolíu, limesafa hrært saman og svo
smátt söxuðum skarlotulauk bætt út í. Saltið og piprið sósuna.
Verði ykkur að góðu!