Kjarnafæði hefur hafið sölu á forsteiktum grísakótelettum í mötuneytispakkningum. Forsteiktu grísakóteletturnar eru hjúpaðar raspi og tilbúnar beint í ofninn. Forsteiktu grísakóteletturnar frá Kjarnafæði eru úr íslensku úrvals grísakjöti – engum aukaefnum er bætt við, heldur er um að ræða 100% hreint hráefni.
Kóteletturnar eru kryddaðar og hjúpaðar með raspi og síðan yfirborðssteiktar í jurtaolíu. Kóteletturnar eru síðan snöggfrystar til að tryggja sem mest gæði.
Kóteletturnar má setja frosnar beint í ofninn og steikja í uþb. 30-40 mín við 180°C.
Forsteiktu grísakóteletturnar frá Kjarnafæði fást lauspakkaðar í 5 kg. kössum.
Sjá innihaldslýsingu, smella hér.