Leikstjóri auglýsingarinnar var Baldvin Z, leysti hann verkið vel af hendi og þótti útkoman mjög góð í alla staði. Tónlistin var samin í Svíþjóð af Írisi Viktoríu, tölvuvinnslan og grafík var svo unnin hér heima á Íslandi.
Í auglýsingunum er fylgst með ævintýrum ungs Íslendings, Pétri Arnóri Indriðasyni, sem er nýfarinn í nám í Danmörku. Hann er mikill aðdáandi Kjarnafæði Pepperoni og á í mestum erfiðleikum með að skilja vanþekkingu Dana á Kjarnafæði pepperoni.