Lambahryggvöðvi með blóðbergi
Hægt er að grilla eða steikja hryggvöðvann, mælum með 2 mín. á hvorri hlið. Penslið með kryddleginum jafn óðum,kryddið með salti og pipar og berið fram með villisveppum og fersku salati.
Innihald:
- 4 stk. lambahryggvöðvi
- Kryddlögur:
- 1 stk. hvítlauksgeiri
- 20 ml soya sósa
- 20 ml sítrónu safi og börkur
- 3 msk. dijon sinnep
- 2 msk. hunang
- 2 greinar blóðberg
Aðferð:
Afhýðið hvítlauk og pressið. Blandið soya sósu, hvítlauk,
sítrónusafa og börk, dijon sinnepi, hunangi og blóðbergi
saman ískál. Kryddlöginn má geyma í ísskáp í kæli í 1-2
daga fyrir notkun.
Grillið eða steikið hryggvöðvana í um 2 mín. á hvorri hlið
og penslið með kryddleginum jafn óðum,kryddið með salti
og pipar og berið fram með villisveppum og fersku salati.
Verði ykkur að góðu!
Frekari upplýsingar: