Setjið súpukjötið í pott ásamt salti og vatni. Látið suðuna koma upp og veiðið alla fitu og froðu af soðinu með ausu. Látið sjóða við vægan hita í 30 mín. Skerið allt grænmetið og kartöflurnar í bita og setjið allt nema hvítkálið og súpujurtirnar í pottinn ásamt pipar og sjóðið í 20 mín. Bætið hvítkáli og súpujurtum í pottinn og sjóðið í 15 mín til viðbótar.
Íslensk lambakjötssúpa
Innihald fyrir 4-6:
- 1 kg lambasúpukjöt
- 1 ½ tsk salt
- 1 ½ L vatn
- 3 millistórar gulrætur, skrældar
- 1 millistór rófa, skræld
- 2 laukar, skrældir
- 1 blaðlaukur
- 6 millistórar kartöflur
- 1/4 hvítkálshaus
- 1 tsk nýmalaður pipar
- 1/2 poki súpujurtir
Aðferð:
Setjið súpukjötið í pott ásamt salti og vatni. Látið suðuna koma upp og veiðið alla fitu og froðu af soðinu með ausu. Látið sjóða við vægan hita í 30 mín. Skerið allt grænmetið og kartöflurnar í bita og setjið allt nema hvítkálið og súpujurtirnar í pottinn ásamt pipar og sjóðið í 20 mín. Bætið hvítkáli og súpujurtum í pottinn og sjóðið í 15 mín til viðbótar.
Marokkósk lambakjötssúpa
Innihald fyrir 4- 6
- 1 kg lambasúpukjöt
- 1 ½ tsk salt
- 1 tsk nýmalaður pipar
- 3 msk olía
- 1 laukur, smátt saxaður
- 1-2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
- 4 msk tómatmauk
- 2 tsk chillimauk
- 1 tsk kúmín
- 1 L vatn
- 400 g niðursoðnir tómatar
- 2 sellerístilkar, í bitum
- 2 dl bygg
- 2 msk steinselja, smátt söxuð
- 2 msk kóriander, smátt saxað
- 1 sítróna, skorin í 6 báta
Aðferð:
Kryddið súpukjötið með salti, pipar og kúmín og steikið í olíu í vel heitum potti í 3-4 mín eða þar til kjötið er fallega brúnað á báðum hliðum. Bætið lauk, hvítlauk og sellerí ásamt tómatmauki og chillimauki í pottinn og látið krauma í 1 mín, hrærið stöðugt í á meðan. Hellið vatni og niðursoðnum tómötum í pottinn og sjóðið við vægan hita í 40 mín. Bætið þá byggi í pottinn og sjóðið í 25 mín. Smakkið til með salti og pipar og bætið steinselju og kóriander út í súpuna. Berið fram meðsítrónubátum og grófu brauði.
Verði ykkur að góðu!
Frekari upplýsingar: