Halli Helga verslunarmaður í 70 ár!

Það eru nú fáir sem geta státað af því að eiga 70 ára starfsafmæli en það getur herra Haraldur Helgason sölumaður hjá Kjarnafæði.

Það eru nú fáir sem geta státað af því að eiga 70 ára starfsafmæli en það getur herra Haraldur Helgason sölumaður hjá Kjarnafæði.


Haraldur byrjaði sumarið 1934 sem sendill hjá Kaupfélagi Eyfirðinga, þá 14 ára gamall. Síðan hefur hann hefur hann átt farsælan feril sem verslunarmaður á Eyjafjarðarsvæðinu.

Hann hefur hvergi slakað á þótt árunum fjölgi heldur er hann í dag einn allra öflugasti sölumaður Kjarnafæðis. 'Haraldur er ótrúlegur sölumaður og treysti ég engum betur til að takast á við erfið söluverkefni.' segir Auðjón, markaðsstjóri Kjarnafæðis. 'Halli er fæddur sölumaður, margir viðskiptavinir okkar vilja við engan annan skipta og við vonumst til að geta nýtt krafta hans í önnur 70 ár.'