Létt og gott ávaxtasalat, sem er einstaklega gott á eftir þungri máltíð.
Létt og gott ávaxtasalat, sem er einstaklega gott á eftir þungri máltíð.
1 stk | Galia-melóna |
4 stk | Kíví |
1 klasi | Græn vínber |
2 msk | Hunang (fljótandi) |
8-12 blöð | Fersk mynta (má sleppa) |
Skerið börkinn frá og steinhreinsið melónuna og skerið hana síðan í minni bita.
Afhýðið kívíið og skerið í sneiðar.
Skolið vínberin, skerið þau í tvennt og steinhreinsið.
Geymið safann sem rennur af ávöxtunum þegar þeir eru skornir.
Blandið saman ávöxtunum og setjið í skálar.
Blandið saman safanum og hunanginu og hellið yfir ávextina. Skreytið með myntublöðunum.
Ef það á ekki að bera salatið strax fram, er gott að úða smá sítrónusafa yfir ávextina til að viðhalda ferskleika þeirra.
Verði ykkur að góðu!